Sigrúnu áfram í stjórn Visku

Ég býð mig fram til áframhaldandi setu í stjórn Visku.
Viska er að stíga sín stærstu skref hingað til í áframhaldandi vexti og ég vil halda áfram að leiða þá vegferð.
Ég hef tekið þátt í að byggja félagið upp frá grunni og setið í stjórn Visku frá stofnun, auk þess að sitja í stjórn BHM sem gjaldkeri. Það hefur verið mikill heiður að vera hluti af þeirri vegferð og þeim krafti sem einkennir Visku.

Um mig

Ég er 42 ára og alin upp í Reykjavík. Ég hef búið og starfað í Noregi og Danmörku og hef fjölbreytta reynslu af störfum í menningar- og samfélagsmálum, bæði hérlendis og á alþjóðlegum vettvangi. Ég hef meðal annars starfað við sendiráð Íslands í Osló og fyrir Norðurlandaráð og Norrænu ráðherranefndina.Ég er menntuð í fjölmiðlafræði frá Háskólanum á Akureyri og hef lagt stund á nám í menningarstjórnun við Háskólann á Bifröst. Ég hef víðtæka reynslu í verkefna- og viðburðastjórnun, samskiptum og hagsmunagæslu og legg áherslu á lausnamiðaða nálgun og gott samstarf.Í frítíma mínum hef ég gaman af því að elda góðan mat og njóta samveru með vinum og fjölskyldu. Ég hlusta mikið á alls kyns hlaðvörp og nýt þess að vera úti við, hvort sem það er í gönguferðum eða annarri útivist. Skemmtileg staðreynd: ef ég ætla að hafa það extra kósý heima set ég gjarnan á góða spennu- eða hryllingsmynd.

Áherslumál

Undanfarið ár höfum við í Visku stóreflt hagsmunagæslu félagsfólks sem og greiningar um stöðu og kaupmátt launafólks og eftir því hefur verið tekið. Við höfum einnig eflt þjónustu við félagsfólk með aukinni ráðgjöf, könnunum og markvissri gagnaöflun sem nýtist beint í okkar launabaráttuna.
Við höfum stofnað óhagnaðardrifið húsnæðisfélag, fyrst stéttarfélaga háskólamenntaðra, og með uppbyggingu Visku stúdentakerfisins höfum við styrkt tengsl við stúdenta og byggt með því mikilvæga brú inn í Visku. Þar skiptir sérstaklega máli að styðja við ungt fólk í fyrstu skrefum þess á vinnumarkaði og tryggja þeim betri kjör og raunhæfa möguleika/góða þjónustu til framtíðar.